Hagkvæm þjónusta
Hagkvæmir flutningar með skýru byrjunarverði og sveigjanlegri þjónustu.
Sendibílaþjónustan býður alhliða flutningaþjónustu, sorpuferðir og flutningsþrif fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki. Við erum með aðsetur að Breiðvangi 10 í Hafnarfirði og þjónustum Reykjavík og nágrenni. Okkar markmið er að létta þér lífið þegar kemur að flutningum. Allt er sniðið eftir þínum þörfum.
Sendibílaþjónustan var skráð árið 2006. Við höfum yfir 20 ára reynslu af flutningum, píanóflutningum, hreingerningum og Sorpuferðum. Þú færð því alla þessa þjónustu á einum stað þegar þú ert að flytja.
Við sækjum í verslanir, lagera og heimahús og sendum einnig á flutningastöðvar til áframflutnings út á land eða úr landi.
Við sérhæfum okkur í alhliða flutningaþjónustu og flytjum stórar og smáar sendingar fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki. Við sinnum einnig vörudreifingu og keyrum vörur til verslana, lagera og heimahúsa. Bílstjórinn þinn sér um flutninginn af ábyrgð og leggur sig fram um að gera verkið eins auðvelt og þægilegt fyrir þig og mögulegt er. Þannig sparar þú bæði bakið, tímann og peningana. Við bjóðum sveigjanlega þjónustu sem tekur mið af umfangi og þörfum hvers viðskiptavinar.
Hvort sem þú ert að flytja einn sófa, heila búslóð eða þarft að koma gömlu dóti í Sorpu sjáum við um verkið. Við gerum tilboð þér að kostnaðarlausu og allt er sniðið eftir þínum þörfum. Hringdu í 772 1450 og við finnum bestu leiðina.
Hjá Sendibílaþjónustunni færðu skýra og áreiðanlega þjónustu frá fyrsta símtali. Við mætum á réttum tíma, förum vel með eigur þínar og gefum þér tilboð án skuldbindingar, hvort sem um er að ræða sendibíl með bílstjóra eða stóra búslóðaflutninga.
Afhending á
réttum tíma
Skemmdalaus
meðhöndlun
Ánægja
viðskiptavina
Við leggjum áherslu á hagkvæma þjónustu, sveigjanlega flutninga og örugga meðhöndlun muna.
Hagkvæmir flutningar með skýru byrjunarverði og sveigjanlegri þjónustu.
Við bjóðum sendibíl og kassabíl fyrir mismunandi flutningaþarfir.
Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð og varlega meðhöndlun muna.
Við flytjum húsgögn, heimilismuni og aðrar vörur á áfangastað.
Yfir 1.000 ánægðir viðskiptavinir
Við bjóðum upp á flutningsþrif, þrif eftir framkvæmdir, gluggaþvott, stéttahreinsun og teppahreinsun fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.