Búslóðaflutningar með kassabíl hjá Sendibílaþjónustunni – sendibílaþjónusta fyrir flutning húsgagna og heimilismuna.

Sendibílaþjónustan – Búslóðaflutningar

Þarftu að flytja búslóð, húsgögn eða aðra muni? Hjá Sendibílaþjónustunni bjóðum við alhliða flutningaþjónustu fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki. Við flytjum stórar og smáar sendingar og leggjum áherslu á að sníða þjónustuna að þínum þörfum.

Okkar markmið er að létta þér lífið þegar kemur að flutningum. Hvort sem þú þarft að flytja húsgögn, heimilistæki eða einstaka hluti getum við hjálpað þér að skipuleggja flutninginn. Hafðu samband og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu.

Ef óskað er eftir sendibíl með stuttum fyrirvara er best að hringja. Hafðu samband í síma +354 772 1450 og fáðu tilboð þér að kostnaðarlausu, eða sendu fyrirspurn hér.

Flutningar fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki

Við tökum að okkur fjölbreytt flutningaverkefni og bjóðum sveigjanlega þjónustu eftir umfangi og þörfum hvers viðskiptavinar.

  • Búslóðaflutningar: flutningur á búslóð og persónulegum munum milli staða.
  • Húsgagnaflutningar: flutningur á húsgögnum og stærri hlutum.
  • Stórar og smáar sendingar: flutningar fyrir einstaklinga, húsfélög og fyrirtæki.
  • Vörudreifing: við keyrum vörur til verslana, lagera og heimahúsa.
  • Flutningur á flutningastöðvar: við komum vörum á flutningastöðvar til áframflutnings út á land eða úr landi.

Hvað er innifalið?

  • Sendibíll sem hentar vel til að flytja búslóð
  • Aðstoð bílstjóra við flutninginn
  • Flutningur á húsgögnum, heimilistækjum og kössum
  • Sótt í heimahús og skilað á áfangastað
  • Við sendum einnig á flutningastöðvar til áframflutnings til eða frá Íslandi
Búslóðaflutningar hjá Sendibílaþjónustunni með flutningi á húsgögnum og kössum – áreiðanleg sendibílaþjónusta.

Undirbúningur fyrir búslóðaflutning

Góður undirbúningur getur auðveldað flutninginn og komið í veg fyrir skemmdir á húsgögnum og öðrum munum. Áður en þú byrjar mælum við með að hafa eftirfarandi í huga:

  • Pakkaðu minni hlutum vel í kassa og lokaðu þeim fyrir flutning.
  • Gakktu úr skugga um að húsgögn og heimilistæki séu vel varin með pappa eða þykku plasti.
  • Farðu sérstaklega varlega með horn og viðkvæma hluti.
  • Láttu okkur vita fyrirfram ef þú þarft að flytja þunga eða óvenju stóra hluti.
  • Hafðu hlutina tilbúna til flutnings þegar bíllinn kemur.
  • Tryggðu gott aðgengi að húsnæðinu og flutningsleiðinni.

Ópakkaðar og/eða umbúðalausar vörur í flutningi eru ávallt á ábyrgð eiganda. Því er mikilvægt að undirbúa alla hluti vel fyrir flutning. Nánari upplýsingar má finna í flutningsskilmálum okkar.

Hvernig gengur búslóðaflutningurinn fyrir sig?

  1. Hringdu eða sendu fyrirspurn. Segðu okkur hvað á að flytja, hvaðan og hvert.
  2. Þú færð tilboð án kostnaðar. Allt er sniðið eftir þínum þörfum.
  3. Við mætum og sjáum um flutninginn. Bílstjórinn aðstoðar við flutninginn.

Gátlisti fyrir flutningadaginn

  1. Pakkaðu í sterka kassa og merktu þá með herbergi.
  2. Taktu húsgögn í sundur þar sem það á við.
  3. Tæmdu ísskáp og þvottavél daginn áður.
  4. Gættu þess að bílastæði og aðgengi séu laus þegar bíllinn kemur.
  5. Gamalt dót sem þú vilt losna við? Skoðaðu Sorpuferðir.
  6. Skilar þú íbúðinni? Skoðaðu Flutningsþrif.
Fjarlægingarþjónusta hjá Sendibílaþjónustan

Fleiri þjónustur tengdar flutningum

Fáðu tilboð í búslóðaflutninga

Vantar þig sérsniðna flutningsáætlun? Sendibílaþjónustan sér um búslóðina frá upphafi til enda.

Við leggjum áherslu á alhliða flutningaþjónustu, sveigjanlegar lausnir og þjónustu sem tekur mið af þínum þörfum. Hafðu samband við Sendibílaþjónustuna og fáðu tilboð í búslóðaflutning eða önnur flutningaverkefni

Fáðu tilboð í búslóðaflutninga

Vantar þig sérsniðna flutningsáætlun? Sendibílaþjónustan sér um búslóðina frá upphafi til enda.

Ef óskað er eftir sendibíl í búslóðaflutning með stuttum fyrirvara er best að hringja.

Pantaðu búslóðaflutninga

Fylltu út formið og segðu okkur hvað þú þarft. Sendibílaþjónustan hringir í þig við fyrsta tækifæri og staðfestir bókunina.